Aðalfundur Golfklúbbs Suðurnesja 2022 verður haldinn miðvikudaginn 23. nóvember næstkomandi kl. 18:00.
Dagskrá aðalfundar:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár.
3. Reikningar lagðir fram og skýrðir.
4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Atkvæðagreiðsla um reikningana.
5. Lagabreytingar.
6. Lögð fram tillaga um gjaldskrá.
7. Kosning formanns.
8. Kosning fjögurra stjórnarmanna.
9. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
10. Önnur mál.
Afl atkvæða ræður á aðalfundi. Atkvæðisrétt hafa allir félagsmenn GS 18 ára og eldri sem greitt hafa árgjald þess starfsárs sem er að ljúka og mættir eru á aðalfund. Þeir eru einnig kjörgengir til stjórnarkjörs. Við hvetjum alla félaga sem bera hag klúbbsins fyrir brjósti og hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum til að tryggja áframhaldandi uppgang hans, að gefa kost á sér til stjórnar- eða nefndarstarfa. Tilkynningar um framboð til stjórnar þurfa að hafa borist skrifstofu GS minnst viku fyrir aðalfund.
Kveðja,
Stjórn GS
Comments