top of page
Writer's pictureGolfklúbbur Suðurnesja

Sigmundur á 45 punktum og Guðmundur Rúnar tveimur höggum undir pari sigra Stigamót 1

Fyrsta stigamótið í samstarfi við Íslandsbanka fór fram hjá okkur síðastliðinn þriðjudag í blíðskaparveðri. Það voru 69 keppendur sem tóku þátt í mótinu og var góð spilamennska hjá mörgum. Tuttugu og fjórir kylfingar voru á 36 punktum eða yfir og þar af voru átta sem voru með fjörtíu eða fleiri punkta.


Sigmundur Bjarki Egilsson kom inn með flesta punkta en hann fékk 45 punkta á hringnum sínum. Í öðru sæti með 43 punkta var Gunnlaugur Dan Guðjónsson og Sigríður Erlingsdóttir fær þriðju verðlaun með 42 punkta en hún hafði betur á seinnustu níu fram yfir Annel Fannar Annelsson.


Einnig voru veitt verðlaun fyrir besta skorið og var það Guðmundur Rúnar Hallgrímsson sem spilaði á tveimur höggum undir pari eða 70 höggum.


Næstur holu á 16. braut varð svo Bjarni Fannar Bjarnason en hann var 2.10m frá holu. Allir verðlaunahafar fá í verðlaun tíma í golfherminn okkar.


Stigamót númer 2 verður svo haldið þriðjudaginn 4. júní en mótanefnd vill endilega hvetja sem flesta til að taka þátt og safna stigum yfir sumarið.

 

Úrslit:

Punktakeppni 


  1. Sigmundur B. Egilsson 45 punktar

  2. Gunnlaugur D. Guðjónsson 43 punktar

  3. SIgríður Erlingsdóttir 42 punktar (S9)

  4. Annel F. Annelsson 42 punktar

  5. Stefán J. Sigurðsson 40 punktar (S9)

Höggleikur 


  1. Guðmunur R. Hallgrímsson 70 högg

  2. Pétur Þór Jaidee 72 högg

  3. Auðunn F. Hafþórsson 73 högg

  4. Sveinn A. Sigurpálsson 74 högg (S6)

  5. Róbert Smári Jónsson 74 högg




111 views0 comments

Comentarios


bottom of page