Nú hafa verið spiluð þrjú stigamót af átta mótum sem haldin verða í sumar. Eins og áður hefur komið fram þá telja bestu fimm mótin hjá kylfingum. Það er því enn hægt að byrja að spila og ná fimm hringjum í keppninni. Keppt er í karlaflokki og kvennaflokki og eru stigin reiknuð út frá punktafjölda hvers og eins í hverju móti. Staðan eftir þrjú mót er eftirfarandi:
Karlaflokkur:
1. Rúnar Óli Einarsson 103p
2. Davíð Skarphéðinsson 102p
2. Björgvin Sigmundsson 102p
4. Oddgeir Karlsson 101p
4. Snæbjörn Guðni Valtýsson 101p
Kvennaflokkur:
1. Guðrún Þorsteinsdóttir 107p
2. Karítas Sigurvinsdóttir 99p
3. Sólveig Björgvinsdóttir 36p
3. Guðrún Olga Ólafsdóttir 36p
5. Sigríður Erlingsdóttir 35p
Comments