Stigamót 3 fór fram í gær og tóku yfir 70 félagsmenn þátt að þessu sinni og voru margir að skila inn góðum hringjum.
Ingi Rafn William Davíðsson vann punktakeppnina á 42 punktum en Ingi verður 14 ára eftir 2 vikur. Sveinn Andri Sigurpálsson gerði sér lítið og lék hringinn 7 höggum undir pari eða á 64 höggum sem er nýtt vallarmet af gulum teigum á Hólmsvelli. Sigurður Stefánsson fór svo holu í höggi á 9.braut. Við óskum þeim félögum til hamingju með árangurinn.
Annars urðu helstu úrslit eftirfarandi:
Punktakeppni með forgjöf:
1. sæti: Ingi Rafn Davíðsson, – 42 punktar
2. sæti: Brynjar Steinn Jónsson – 40 punktar
3. sæti: Jón Jóhannsson – 39 punktar
Höggleikur án forgjafar:
1. sæti: Sveinn Andri Sigurpálsson – 64 högg
2. sæti: Logi Sigurðsson – 66 högg
3. sæti: Jón Jóhannsson – 71 högg
Nándarverðlaun:
9. braut: Sigurður Stefánsson 0 cm – hola í höggi
Stigamót 4 er á dagskrá nk. þriðjudag 27.ágúst og er nú þegar opið fyrir skráningu.
Comments