Þorsteinn Kristinsson átti sinn besta golfhring á þriðjudaginn og sigraði hann örugglega sjötta Stigamótið á 46 punktum. Annel Fannar Annelsson varð í öðru sæti á 42 punktum á meðan fjórir félagsmenn komu inn á 40 punktum. Einar Snorrason var hlutskarpastur af þeim með fleiri punkta yfir síðustu sex holunum. Guðmundur Rúnar Hallgrímsson sigraði höggleikinn á 69 höggum eða þremur höggum undir pari vallarins og Grétar Helgason var næstur 16.holu á 1.56m.
Nú er sex umferðum lokið í Stigamóti GS fyrir árið 2023 og eru Oddgeir Karlsson og Rúnar Sigurvinsson efstir og jafnir með 180 punkta á meðan Örn Ævar Hjartarson fylgir þeim fast á eftir í þriðja sæti með 177 punkta.
Svandís Þorsteinsdóttir leiðir áfram keppni kvenna á 162 punktum og er Eva Stefánsdóttir í öðru sætinu með 144 punkta. Guðný Gunnarsdóttir er í því þriðja á 137 punktum, 25 punktum á eftir Svandísi á meðan Guðný á enn inni eitt Stigamót.
Stigamót 7 verður haldið 22.ágúst og opið er fyrir skráningu í Golfbox. Staða leikmanna eftir sex umferðir er hér: https://tour.golfbox.dk/Site/OrderOfMerit/197792/
Stigamót 6 úrslit:
Punktakeppni:
Þorsteinn Kristinsson 46 punktar
Annel Fannar Annelsson 42
Einar Snorrason 40 (L6)
Höggleikur
Guðmundur R. Hallgrímsson 69 högg
Nándarverðlaun 16.holu
Grétar Helgason 1.56 m
Stigamót karla GS 2023:
Oddgeir E. Karlsson 180 punktar
Rúnar M. Sigurvinsson 180
Örn Ævar Hjartarson 177
Stigamót kvenna GS 2023:
Svandís Þorsteinsdóttir 162 punktar
Eva Stefánsdóttir 144
Guðný Gunnarsdóttir 137
Comentários